ég er svo fallegur
smáfólkið
25.04.2006 23:22:03 / hlynur

Snilld!

Snilld
Það er gaman að vera til. Þetta er sá árstimi sem ég hlakka alltaf svo mikið til. Vorið ilmandi í loftinu og sumarið á næstu grösum. Það er alltaf sérstök tilfinning á vorin, alltaf eitthvað að klárast og annað meira spennandi að taka við. Ég hlakka alltaf meira til vorsin en sjálfra jólanna. Maður þekkir dæmi þess að fólk kvíði veturs en ég þekki engan sem kvíðir sumri.
Af öðru.
Núna fyrr í kvöld tryggði Arsenal sér rétt til að leika til úrslit í meistaradeild evrópu sem er géðveikt(með ara framburði). Það var ofurtöffarinn Jens Lehman sem varði víti á 89. mín og sannaði að hann er markmaður á heimsmælikvarða, ef ekki geims. Enda markmaður Þýskalands nr. 1, og er vel að því kominn. Hann er búin að spila frábærlega í allan vetur, ekki stígið feilspor þó að liðið hafi ekki verið að meika það. Hélt liðinu m.a. á floti fyrri part vetur. Jürgen Klinsman, sem er mesti snilingur í heimi, verðlaunaði hann fyrir góða frammistöðu í vetur og útnefndi hann markmann nr. 1 fyrir Þýskaland á HM í sumar, þar sýndi hann mikið þor að stinga uppí Bayern München klíkuna. Það þarf mikinn kjark að þora að skipta um markmann, hvað þá að ef hann er í bayern klíkunni. Oliver Kahn er vissulega mjög góður markmaður en þessa dagana er Jens betri. Kahn á hrós skilið fyrir að taka þessu eins og sannur íþróttamaður og segjast ætla styðja liðið með ráðum og dáðum og þar á meðal Jens.
Það ræðst síðan á morgun hvort það verður Mílan eða Barcelona sem mæta Arsenal. Það væri geðveikt ef það yrði Barcelona, samt um leið erfitt fyrir mig en skemmtilegt vandamál til að leysa. Maður yrði alltaf sigurvegari hvernig sem færi eða looser.

Þetta er svo geðveikt.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 12:50:42 / hlynur

motta

hvað er meira töff en að vera með mottu? ég er með mottu, það er töff.


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 00:01:19 / hlynur

fugl

Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi.

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 17:48:26 / hlynur

bara fyrir gísla

FJÖGUR STÖRF SEM ÉG HEF UNNIÐ YFIR ÆVINA!!!

Rafvirki
Fiskvinnslumaður
Afgreiðslumaður
Byggingaverkamaður

FJÓRAR BÍÓMYNDIR SEM ÉG GÆTI HORFT AFTUR OG AFTUR Á:

Godfather (allur pakkinn)
Bond eins og hann leggur sig
Das boot
Magnús (góð saga)

FJÓRIR STAÐIR SEM ÉG HEF BÚIÐ Á:

Þórunnarstæti
Arnarsiða
Álakvísl
dvergaborgir


FJÓRIR SJÓNVARPSÞÆTTIR SEM MÉR LÍKAR:

Lost
Reunon góður
Sex in the city
Ensku mörkin

FJÓRIR STAÐIR SEM ÉG HEF HEIMSÓTT Í FRÍUM:

London
Kaupmannahöfn
benedorm
rhodos

FJÓRAR SÍÐUR SEM ÉG SKOÐA DAGLEGA FYRIR UTAN BLOGGSÍÐUR:

mbl.is
fotbolti.net
ka-sport.is
tiava.com

FJÓRAR BÆKUR SEM ÉG LES OFT:

Les ekki bækur oft, einu sinni er nog.

FJÓRIR STAÐIR SEM ÉG VILDI HELDUR VERA Á NÚNA:

New York
Argentinu
Þýskalandi
Katalóníu

4 SRTÁKAR SEM ÉG SKORA Á AÐ GERA ÞETTA ERU!!

David Beckham
Therry Henry
Larry Bird
Jurgen Klinsmann


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 23:58:50 / hlynur

nýtt

Vá hvað það er langt síðan ég skrifaði eitthvað hingað inn Það var dagin áður en KA vann Þór 6-1. það er samt gaman að sjá að það eru en um það bil 4 heimsóknir á dag.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2005 17:53:36 / hlynur

á ferðinni

Lókurinn er á leið í bæinn

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 23:39:43 / hlynur

Timin er ekki vandamál heldur timaleysið sem vandamálið

Timi er ekki góður hlutur (ef timi er hlutur). Stundum vantar tima og stundum getur maður ekki beðið eftir því að klukkan líði. Fyrra ástandið á við mig núna það er að segja að það er mikið að gera hjá mér þessa stundina. Er að vinna fullan vinnudag og er á námskeiði fyrir sveinsprófið. Dagurinn hjá mér er þanning að ég ferð að heiman um hálf 8 og er komin heim um 11. Þetta námskeið er nokkuð skemmtilegt og á eflaust eftir að gagnast mér þegar í hólminn er komið. Sveinspróf í rafvirkjum er nefnilega sýnd veiði en ekki gefinn. Það er um það bil 50% fall í einum hluta, það er raffræðinn. Maður verður bara að leggja hart að sér til að ná. Það er það eina sem ég hef áhyggjur af. En ég er þannig gerður að ég er ekki fara í próf til að falla þannig að ég ætla rokka feit í þessu. Þetta sveinspróf á hug minn þessa stundina þannig að önnur áhugamál sitja á haganum þessa stundina. Get því miður ekki fjallað um boltan eins mikið og í vil en það stendur allt til bóta þegar prófið er búið. Er núna að horfa á þegar þessi orð eru rituð á einnhverja fegurðarsamkeppni. Að taka þátt í fegurðarsamkeppni er jafnmerkileg og að taka þátt í hundasýningu. Hvað er málið, þetta er það alvitlausasta fyrirbæri sem til er. Maður á bara ekki orð til að lýsa þessari vitleysu. Það er jafn gáfulegt að keppa í fegurð eins og að keppa í svefni. Hvað er í gangi með þetta lið. Verð pirraður að horfa á svona HEIMSKU og nenni ekki að tala um það meira. En hvernig halda aðdáendur mínir að mér muni ganga í sveinsprófinu?

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2005 16:39:24 / hlynur

meistarar 04/05

Barcelona er spænskur meistari 2005-2004!!! Þetta er stórkostlegt niðurstaða, Barcelona er langbesta lðið í boltanum í dag. Þetta er það sem koma skal hjá þessu stórkostlega íþróttafélagi. Barcelona er nefnilega íþróttafélag ekki bara Knattspyrnufélag. Eru Evrópumeistarar í handbolta og með mjög gott lið í körfu og póló. Barcelona hefur aldrei haft auglysingu á búningnum hjá sér. Það stóð til að setja auglysingu á búninginn til að bjarga fjárhagnum en þá risu aðdáendur gegn því. Félagar í Barcelona vildu frekar borga meira í félagsgjöld en fá auglýsingu á búninginn. Þetta lýsir stolti Catalóna fyrir félagið sitt. Lið sem Barcelona hefur á að skipa er stórkostlegt í alla staði. Samuel Eto er einn mesta markamaskina í heiminum. Ronaldiho er besti Knattspyrnumaður í heimi. Xavi er leikinn vinnuhestur sem berst fyrir liðið, er uppalinn. Síðan er það fyrirliðinn Carles Puyol hann er hjarta og sál Barcelona borgar. Baráttuhundur út í eitt gefst aldrei upp. Hann er algjör nagli útí fingurgóma, myndi stökkva í veg fyrir vörubíl ef Barcelona myndi biðja hann um það. Þaö vantar fleiri eins og hann í boltan í dag. Það er orðið alltof mikið af einnhverjum pussum sem spila bara fyrir peninginn ekki fyrir stoltið. Puyol er góð fyrirmynd fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skef í íþróttum.

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2005 22:25:58 / hlynur

blablabla

held bráðum að ég fari að drepast í eli. Allavega miðað við hvað ég gerði um helgina. Á föstudaginnn fór ég smá hjólatúr og endaði í mosó sem er reyndar ekki svo langt. ég þarf nefnilega að forðast að vera heima vegna þess að íris er að læra fyrir próf. Á laugardaginn var svona þrifa dagur í blokkinni þar sem allir fóru út að taka til á lóðinni og að sjálfsögði gerði ég skildu mína sem nágranni, síðan þegar allt var búið var pizza og bjór. í dag var síðan barnaafmæli hjá þeim Ásgeiri og Gunnari Þóri frændum mínum.Það var verið að halda uppá 2 ára afmælið. Það var mjög gaman og mikið borðað af súkkulaðikökum.
Horfði síðan að Arsenal- liverpool. mínir menn unnu að sjálfsögðu auðveldan sigur. Leikmenn Liverpool verða aðeins að fara að líta í eigin barm. Menn eins carra sem spiluðu eins og englar á móti Chelsea voru ekki likir sjálfum sér í dag. Það var skemmtiegt að sjá hvað arsenal notar kantspilið vel og hvað lauren er sprækur. Var sí ógnandi sérstaklega í fyrri háfleik og var óheppinn að skora ekki. Síðan kom inná hjá liverfools maður að nafni Cisse og VÁ hvað hann er lélegur. það er ekki fyndið hvað hann er slappur. hann er bara fljótur að hlaupa ekkert annað. Skilur ekki leikinn frekar en hundur. Að hann hafi verið keyptur á 11 milljónir punda er djók. Hann minnir mig á einn leikmann hér heima í 1.deidinni. Var fenginn til liðsins og átti að geta breytt vatni í vín en drullaði bara uppá bak í staðinn.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2005 13:00:48 / hlynur

god shit

Fimmtudagsfríinn er góður hlutur. Þá slappar maður af heima hjá sér og gerir ekki neitt. Það finnst mér vera kostur. Held nefnilega ef þessi frí væru að föstudagi eða mánudagi myndi maður rífa sig af stað i myndarskap einhverjumÞ og fara að gera eitthvað stórt og merkilegt. Til dæmis fara norður og detta íþað, fara í sveitina eða ráðast í einnhverjar stórframkvæmdir á heimilinu. Allt þetta tæki tima frá manni sem maður gæti notað í það að slappa af og hafa það gott. Skil þó hitt að fólk vilji frekar vera í samfeldu fríi. Hitt hentar mér betur. Arsenal missti tililinn um helgina til Chelsea og flestir Íslendingar eru að rifna úr stolti vegna þess að Eiður Smári er í Chelsea. Margir ausa lofi á hinn mikla mann Roman Abramovits og tileinka honum þennan titil. Mér finnst að leikmenn og aðdándur Chelsea ættu að tileinka Rússneskri alþýði meistaratitilinn því að það er hún sem blæðir. Liverpool heldur áfram að koma á óvart í meistaradeildini með því að komast í úrslit. Þar mætta þeir AC milan. Það skildi þó aldrei vera að Liverpool myndi vinna meistaradeildina. Ég trúi því ekki fyrir en ég sé það gerast.

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2005 14:29:31 / hlynur

áhugavert

það er gaman að skoða kaupverð leikmanna hjá 3 efstu liðunnumí enskaboltanum. þar er skemmtileg staðreynd. Arsenal hefur lið sem er 1/3 af liði chelsea hvað varðar vermæti leikmanna. það er alltaf gaman að heyra einnhverja segja að chelsea sé ekki að kaupa sér titil. hvernig er hægt að halda því fram. búnir að eyða 189 milljónum punda í leikmenn. Hvet alla til að skoða þessa slóð http://fotbolti.net/fullStory.php?id=24764. finnst reyndar vanta hvað liverpool eru búnir að eyða miklu. það er pottþétt meira en Arsena, samt geta þeir ekki neit.

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2005 20:02:48 / hlynur

fitness!!!

Það er ekki að mínu skapi, finnst þetta óskaplega vitlaust eitthvað. Þar þrautabraut sem er keppt í sem eflaust strembið en það gildir ekki nema 50% því samanburður lika 50%. Í þessum samanburði er borið saman keppendur eins og hrúta í hrútasýningu. Flestir keppendir líta út eins og skemmdir bannanar vegna mikila notkunar á brúnkukremum. Það er nefnileg talið merki um hreysti að vera brúnn en þarna eru allir svartir. Fitness svona jafn gáfulegt fyrirbæri eins og fegurðarsamkeppni ég bara nenni ekki að skrifa um það fyrirbæri núna kannski seinna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2005 20:12:35 / hlynur

hvernig er hægt að vera á móti...

...því að hafa gjaldfrjálsan leikskóla?
...afnámi á fyrningu í kynferðsglæpum gegn börnum?
...því að banna reykingar á skemmtistöðum?
...því að gera fjármál stjórnmálaflokka opinber?
...því að afnema stimpilgjöld?
þetta eru nokkur atriði sem sjálfstæðismenn eru á móti. Samt segja þeir að alltaf að vinstri menn séu á móti öllu sem er gert.

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2005 23:08:14 / hlynur

ekki sáttur

hvað er málið? afhverju commetar einginn ?

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 22:06:36 / hlynur

er ekki hættur

Ja ég en lifandi þó að þið hafið eflaust óskað annars. Það er mest litið að frétta hjá mér bara vinna, sofa og éta. Ég fagna því að það er komið sumar, ég er sumarstrákur. Finnst gaman að nota sumarið til að njóta lifsins, grilla, drekka bjór og horfa á fótbolta.
Meðan ég rita þessi orð er Vala Matt í sjónvarpinu. Er svona að horfa á þetta með öðru auganu og spyr sjálfan mig að því hvað það er til mikið að kerlingum til að koma í þennan þátt. Verður hun ekki bráðum búinn að hitta allar þessar heimsku kerlingar svo þessi vitleysa hætti.
Er með smá áskorun á Ara Jón um hann setji á fót blog. Hann er maður sem hefur mikið fram að færa og yrði það liftistöng fyrir sálarlíf landsmanna ef Ari skildi ákveða fræða hinn heimska almúga með gáfum sínum.
Nenni ekki að skrifa um meistaradeildina því þessi keppni er búinn í mínum augum. Meina tvö ensk smálið undanúrslitum, ítalska mafían og hasshausar frá Hollandi. Nei takk ekki fyrir mig.
Vil enda þetta með því að segja að Arsenal eru meistarar og verða það áfram.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2